föstudagur, október 08, 2004

bara bara rabbabara

Fór á EDIT PIAF ekki Evitu ... smá rugl í hausnum á mér. Og þetta var alveg geggjaðslega flott! Svakalega sem þessi litla manneskja sem leikur Piaf getur SUNGIÐ. Vá maður!

Fór í skvass í morgun og endaði á að þurfa að taka 20 armbeygjur á TÁNUM af því að ég tapaði tveimur leikjum (10 fyrir hvern tapaðan leik). Erum sem sagt komnar með nýjar reglur til að gera þetta meira spennandi. Þetta er að svínvirka, við leikum eins og brjálæðingar því að við viljum ekki lenda í þeirri niðurlægingu að þurfa að gera armbeygjur á meðan hin telur. En sem betur fer var þetta nokkuð jafnt í dag - ég tapaði tveimur leikjum og makkerinn minn tapaði tveimur líka. NÆST verður StRíÐ!