þriðjudagur, október 26, 2004

Deit dauðans

Fór að rifja upp í gær með vinkonum mínum þegar ég fór einu sinni á deit "dauðans"! Mikið svakalega er þetta fyndið eftir á.

Þetta deit dauðans bauð mér í bústað á fyrsta deiti, var mjög frumlegur og sagði: Hey eigum við að fara upp í bústað, ganga upp á Ingólfsfell og skella okkur svo í pottinn? Nota BENE að við höfðum bara talast saman í síma og skrifast á í tölvupósti. Hafði aldrei séð manninn.

Glúgg! ... ég sagði nú bara "bíddu nú við, sko, áður en við förum að hoppa saman í pottinn, ættum við þá ekki að byrja á að hittast bara á kaffihúsi"

Hafið þið farið á deit dauðans?

En að öðru ....ég er að byggja mig upp andlega og líkamlega fyrir skvassátök morgundagsins. Mér var svo rústað í gærmorgun að ég tapaði ÖLLUM 4 leikjum og þurfti því að taka 40 armbeygjur á tánum. EINS gott að þetta gerist ekki aftur. I'm gonna get you!