sunnudagur, október 31, 2004

gaggalill letiblóð

Í dag hékk ég heima ... í allan dag! Gerði EKKERT .. eða svo til ekkert, fór í sturtu reyndar og plokkaði á mér augnabrúnir og eitthvað svona brúmíng hér og þar. AND that's IT.

Langt síðan ég hef prófað þetta. Í lok dags var ég bara orðin frekar þunglynd á þessu þannig að ég fór út fyrir hús, borðaði ein á Grænum kosti með þetta fína eintak af Marie Claire fyrir framan mig (með Brad utan á) og svo í smá heimsókn til vinkonu minnar á eftir. VARÐ að hitta lifandi manneskju sem ekki var í sjónvarpinu.

Ekkert skvass í fyrramálið, skvassfélaginn er að koma frá DK í aften með nýja fis-spaðann sinn sem ég efast ekki um að hún ætli að rústa mér með! ... oooooh nei! Det duer ikke! :D