sunnudagur, október 24, 2004

Lón og hillur

Það var alveg frábært í lóninu. Ísland skartaði sínu fegursta og útlendingurinn var uppnuminn yfir bleikum himni og mystíkinni sem gufan myndar þarna in the blue lagoon.

Í gær afrekaði ég það að þvo bílinn minn. Hef ekki gert það ALLTOF lengi og mikið er hann sjæní og sætur núna. Það hjálpar mér mjög mikið að vera ENN meiri gella þegar bíllinn manns er svona glæsó thíhí.

En í dag er annað verkefni fyrir höndum. Nú á nefnilega að kaupa nýja hillusamstæðu í stofuna. Ég er búin að vera með hvíta hillusamstæðu síðan ég var 11 ára og núna er mælirinn fullur! GET EKKI MEIR. Búin að fá ÓGEÐ! Ég fékk pening upp í samstæðuna í afmælisgjöf og er ekki enn farinn að nota hann þannig að nú er komið að því!!! vííííí!!! Ikea here I come.