sunnudagur, október 17, 2004

Lúxus

Ég er búin að eiga lúxus helgi. Bara chillaði og hafði það gott. Fór í smá hjólatúr (í vinnuna að sækja bílinn), borðaði á Vegó, lagði mig og fór í risa göngutúr í gærkvöldi.

Í dag er ég bara að chilla líka! ... voða fínt, langt síðan þetta hefur gerst :) Það er líka alveg ágætt að vera ekkert að gera mikið þar sem mér er smá illt í veskinu eftir USA ferðina hehe.

Mig dreymdi vangefinn draum í nótt. Var að aðstoða hana Lottu vinkonu mína við að vera ólétt. Hún var sem sagt á steypirnum í draumnum (er ekki ólétt svo vitað sé í dag) og hún var búin að fá nóg af þyngslunum og við fluttum bara kúluna hennar á mig! Djís hvað þetta var erfitt! Og vá hvað ég dreymi asnalega drauma!!! Við vorum meira að segja að reyna að finna nafn og nafnið Unnur kom skýrt fram.

Maður er náttúrulega smá klikk, en ætli þetta hafi ekki bara eitthvað með það að gera að þrjár mjög nákomnar frænkur og vinkonur eru óléttar: Guðrún Rósa frænka, Sigrún frænka og Elsa Þóra babe í útlöndum. Eða er hægt að ráða þennan draum eitthvað frekar?

Fallegt að líta út um gluggann núna! heiðskírt og fínt. Eruð þið eins og ég, látið stjórnast af veðrinu? thíhí