fimmtudagur, október 07, 2004

Mennó!

Mín er ekkert smá mennó þessa dagana ... í kvöld er ég að fara að sjá Evítu með mútter! vííí mér er sagt að það sé ferlega flott sjóv!

En vitiði hvað? ... nei þið vitið ekki hvað, nema kannski sumir. Ég skal segja ykkur.... sko... þegar ég var að fara út í morgun var ég smá að flýta mér í sund (ætlaði að hitta vinkonu mína þar) og hendist út með íþróttatöskuna, tölvutöskuna og poka með morgunmat í og fattaði um leið og ég skellti á eftir mér að ég var ekki með kellingaveskið mitt. Sem sagt ... ég var húslyklalaus, gsmsímalaus, peningalaus en sem betur fer ekki bíllyklalaus! Mér hefði fundist ég vera ALLS laus ef ég hefði ekki haft bíllyklana.

En jæja ég æsti mig ekkert mikið yfir þessu og fór af stað í sundlaugina og fattaði þegar ég var komin þangað að ég var ekki með pening. Rölti að afgreiðsluborðinu, brosti og var sæt og sagði: "Ehemm, ég vaknaði smá vitlaust í morgun og gleymdi veskinu heima, en vinkona mín ætlaði að hitta mig hér og er sennilega komin ofan í..... er í lagi að ég borgi á leiðinni út?" .... Sem betur fer var konan morgunhress og góðleg og sagði að það væri nú ekki neitt mál!

Málinu var reddað og mér boðið í sund af vinkonu minni! (Greinilega mjög gott trix til að komast ókeypis í sund hehehe).