mánudagur, nóvember 15, 2004

Frænkuhelgin heppnaðist vel

Mér fannst sambúð okkar frændsystkinanna ganga mjög vel um helgina. Höfðum það bara nokkuð gott og borðuðum saman góðan mat, spiluðum smá, gláptum á sjónvarpið og svona. ALLT voða notó. Frænkan brá sér frá á laugardeginum til að vera bókstaflega rústað á skvassmóti FÍFÍS. Þá varð mín smá brjál... og ákvað að nú skyldi verða keyptur nýr spaði. (Árinni kennir illur ræðari og allt það). En ég jafnaði mig fljótt og þegar ég fór í heimsókn með hinni 12 ára gömlu Önnu Laufeyju (upprennandi leikkonu) til Guðrúnar Rósu, Braga og gússígússí (vantar nafn sko). Þau eru svo yyyyyyyndisleg. Á meðan var hinn 16 ára gamli Óli Kalli (tölvugúrú) í tölvunni að sigra heiminn (vona ég).

Og í gær horfðum við saman á heldur betur áhugaverðan Opruh þátt þar sem umræðuefnið var þáttur sem er verið að sýna á ABC sjónvarpsstöðinni. Þátturinn sem heitir WIFE SWAP snýst um það að mjög svo ólíkar mæður prófa að skipta um fjölskyldur í tvær vikur. Ég er bara strax byrjuð að vona að þetta verði sýnt hér á landi. Áhugavert var þetta og sýndi mjög augljóslega að hamingjan verður ekki KEYPT með monníngum. Við unglingarnir voru öll sjokkeruð þegar ofdekraðir unglingar grétu hástöfum yfir því að þurfa að taka skólabílinn í skólann! hehe