föstudagur, nóvember 05, 2004

Föstudagur til frama

Jæja .. það eru komnar myndir af dúllu Guðrúnar Rósu og Bragadóttur á netið, sjá hér. Maður fær smá *klingj* ... og ekki meir um það.

Og að öðru ...sætasta ömmusystir í heimi (ég sem sagt) að fara að djamma í kvöld, Idol og einhver fílingur. Hlakka nú bara til. OF langt síðan síðast :) .. nú verður tjúttað!

Var að átta mig á því að ég er svo mikil Símastarfsmaður að það er rosalegt, gæti ekki hugsað mér að vinna hjá OG Vodafone (dótafón) ... það er bara svo einfalt. Og ef þú ert ekki að átta þig á hvað GSM þjónustu Símans er frábær eru hérna nokkrar góðar ástæður til að flytja sig:

  • Þú færð 2.500 kr inneign hvort sem um er að ræða áskrift eða frelsi.
  • Langflestir GSM notendur kjósa Símann (170.000 símar) og það er mun hagstæðara að hringja innan kerfis Símans en yfir til OG Vodafone.
  • Síminn er með besta dreifikerfið og símtöl eru sekúndumæld. Hjá Og Vodafone eru að lágmarki mældar 60 sek fyrir símtal innan kerfis og síðan hverjar 10 sek mældar.
  • Þú færð GSM samband í mun fleiri löndum
  • Sama hver staðan er, þú getur alltaf hringt kollekt!
  • Og svo framvegis!
Og ef þú ert vinur/ættingi minn getur þú fengið gott númer í gegnum mig og ef þú vilt halda númerinu þínu ... þá er það líka hægt! Hafðu bara samband ef þig langar að breyta til og vera kúl! :Þ thíhíhí