Illt í æðunum!
Jæja, þetta var nú meira fjörið þarna í gærkvöldi. Mættum siðmenntaðar og sætar á Austur-Indíafélagið og fengum þennan DÝRINDISMAT. Undirrituð borðaði eins og hungraður úlfur (kannski smá overstatement) þegar maturinn kom, en biðin var vel þess virði.
2 rauðvínsflöskum og 1 hvítvínsflösku síðar var farið á hina ýmsu skemmtistaði og gleðin hélt áfram. Fórum inn á alveg slatta af stöðum og vorum m.a. frekar snemma á Rex fengum lítið út úr því nema einstaka klíp í rass af "uppum" (kannski frekar wannabe uppar) þessa lands. Þá var haldið á Thorvaldsen þar sem gengið skemmti sér mestan part kvöldsins með tilheyrandi drykkjum (shot-um) og danserí.
Gerðist svo fræg að smakka Absenta skotið - sem var ógeðisdrykkur kvöldsins! ... og kannski að það sé þess vegna sem mér er illt í æðunum í dag! ... hver veit?
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home