fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Kynjahlutfall

Ég var að skoða könnun síðunnar og kemur sérstaklega á óvart að 33% lesenda eru karlmenn og 67% eru kvenfólk. En það er ekki allt sem sýnist. Aðeins þrír svöruðu og ég neita að trúa því að það séu aðeins þrír sem heimsækja þessa síðu. Og hana nú! En það kom mér skemmtilega á óvart að einhver karlkynsvera skyldi vera á þessari síðu hehehe.

Er að fara í saumó í kvöld, þar sem tvær hafa flúið lang og ein flúið klúbbinn erum við bara 5 eftir. Fámennt og góðmennt en Olsógellurnar tvær verða örugglega með okkur í anda .. ehagi?

Annars er ég bara í gúddífíling og er hálf andlaus bara ... sveimérþá!