fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Mikið framundan

Jæja ... hér kemur social calender fröken Göggu!
Rósa Bostongella kom til landsins í morgun og er með smá hóf heima hjá systur sinni í kvöld og maður mætir að sjálfsögðu þangað

Svo er ætlunin að fara út að borða með henni annað kvöld og þar á eftir í 30 ára afmæli Selmu vinkonu minnar frá í MR.

Laugardagskvöldið verður svo FAB því að þá er ég að fara að hitta Kópavogssaumóinn á Austur-Indíafélaginu. Planið er svo að djamma ærlega en það hefur ekki verið gert í þessum hópi svo mánuðum skipti (jafnvel árum) þannig að þetta ætti að verða þónokkuð stuð! Erum þó í smá óvissu hvar best sé að djamma þessa dagana? Eruð þið með tillögur?

Þetta verður örugglega allt hrikalega skemmtilegt og um að gera að muna að daðra eins og manni var kennt í Fólki með Sirrý (Pirrý) í gærkvöldi. Fékk sem sagt svar við spurningunni hvernig á að vera sexý í gærkvöldi hehe!