laugardagur, nóvember 06, 2004

Partý með fataproblemó

Fór í þetta fína partý í gær. Það var horft á idol (með öðru auganu), dansað í stofunni og sígarettureykur í eldhúsinu.... bara svona ósköp eðlilegt partý. Reyndar var Svíi þarna sem setti smá lit í þetta, ótrúlegasta fólk var byrjað að tala sænsku og dönsku við gaurinn og hann reyndi við allt kvenkyns á svæðinu þrátt fyrir að hafa þennan fína hring á fingri.

Svo gerðist voða fyndið in the clothing department í lok partýsins. Einn gesturinn var að reyna að finna jakkann sinn og fór í einn sem honum fannst líklegur. En það var óvart kvenmannsjakki og hann festist í honum og þurfti aðstoð gestgjafans til að komast úr honum. Annar gestur hringdi í gestgjafann daginn eftir og sagðist vera með "cinderella vandamál" ... hann hafði farið heim í sitthvorum skónum og var að velta því fyrir sér hvaða aðrir karlmenn hefðu verið í partýinu og hvort það gæti verið að annar skórinn hans hefði farið til Svíþjóðar.... whahahahaha