Ég og skata
Góðan daginn fólkens og gleðilegan Þorlák (borið fram Þoddlák - eins og afi minn sagði alltaf). Já nú fer senn að líða að jólum. Ég er mætt í vinnuna og sit hér AAAAALGJÖRLEGA GAAAAALEIN.... hvað er ég að spá? Fleiri ætla sér þó að mæta, en koma sjálfsagt ekki fyrr en upp úr kl. 9. En hvað sem því líður þá ætla ég að fara snemma heim í dag og hana nú!
Ég er ekki að fara snemma heim til þess að fara til mútter að borða skötu..... ONEI! My SKATING days are over!!! ... Ég er búin að reyna í mörg mörg ár að borða þessa blessuðu skötu. Mig langar í rauninni alveg rosalega að geta borðað þetta og finnst þetta sjálfsagt vera partur af því að vera orðin fullorðin. EN ég bara GET ÞETTA EKKI.
Ég, þessi matglaða manneskja, sem hefur næstum borðað allt sem að kjafti kemur í gegnum árin, get bara ekki kyngt þessu skötudóti, mér er það lífsómögulegt.
Þetta hefur kannski eitthvað með það að gera að foreldrar mínir kaupa alltaf kæstustu skötu sem þau finna, svo kæsta að þau tárast við að elda hana og horfa á hana. En alla vega ... í ár verður þetta ekki reynt, í ár ætla ég að fara með Rósu Boston gellu á uppáhaldsveitingastað niðrí í bæ og kíkja svo kannski smá á laugarveginn. Júbbííí .. ég hlakka til :)
Svo í lokin má ég til að benda ykkur á smá grein með pælingu um hvernig er að vera einhleypur um jólin.... algjör snilld! Klik her!
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home