þriðjudagur, desember 14, 2004

Lasleiki og jólaskap

Jæja sæta fólk. Nú er mín aldeilis að komast í jólastuð.

Ég er líka öll að braggast eftir að hafa átt ansi ópródúktíva helgi þar sem ég einbeitti mér að því að vera sem mest í rúminu vegna gullfoss og geysis. Ekki var mikið gert í jólastússi þá helgina en ég fékk jólasveininn í 3 sek heimsókn. Reyndar var það hann pabbi minn sem kíkti örskotstund við til að gefa mér einn yfirfullan plastpoka af gosi, eplum (stemmandi að sögn múttu), banönum, eplasafa, poppi, 1944 máltíð og eina soyamjólk.... EKKI slæmur jólasveinn það.

Þetta reyndist svo vera það sem í daglegu máli kallast sólarhringspestin.

En mikið er ég nú glöð að henni er lokið og ég get bara haldið áfram að byggja upp jólaskapið. Undirbúningurinn er alveg kominn á hreint í hausnum á mér (því ég hafði svo mikinn tíma til að hugsa um helgina). Ég á bara eftir að:

Skrifa jólakortin
Kaupa örfáar jólagjafir
Þrífa íbúðina hátt og lágt
Skreyta smá meira
Pakka inn

... hey ekkert svo mikið ... hlýt að ná þessu!