föstudagur, janúar 21, 2005

Bowling

Var að enda við að ræða við yfirmann minn í vinnunni hvað við ættum að kalla bowlingliðið okkar..... vorum ekki alveg að geta ákveðið okkur hvort það ætti að heita "Brother Louis and sister Sledge" eða "Kilimanjaro" .... svolítið ólíkt sko!

Við erum sem sagt að fara að taka þátt í Bowlingmóti starfsmanna Símans og ætlum að vera 5 eða 6 saman í liði og eigum það öll sameiginlegt að vera gríðarlega léleg.

Við eigum þó séns, því að ef við æfum okkur GEÐVEIKT þangað til mótið verður um miðjan febrúar, gætum við orðið rosa góðir bowlarar! ... ehemm .. ræt ;)