þriðjudagur, janúar 04, 2005

Ógeðslega leiðinleg lög

Abba ... ABBA gold platan eins og hún leggur sig
Rick Ashley ... never gonna give you up
Bjartmar ... súrmjólk í hádeginu og cheerios á kvöldin
Anna Björk ... sjúbbídú
Leoncie ... Ást á pöbbnum
Shaggy ... there's a rat in the kichen what ammma gonna do
Herbert Guðmunds ... svaraðu (kallinu)
Rod Stewart ... baby Jane

Já nú spyrja sumir sig kannski af hverju í ósköpunum þessi upptalning og neikvæðni.

Þetta er ósköp einfallt, ég er að leita að því lagi sem mér þykir leiðinlegast í heimi..... og gæti þegið einhverja hjálp. Eftir töluverða pælingu og samtal við hana Láru er ég komin með gott úrval (og töluvert meira en hér er upptalið). En ég þarf að finna EITT lag sem er ultimately LEIÐÓ og spila það í vinnupartýi á föstudaginn og skýra út af hverju mér finnst það leiðinlegt.

Endilega komið með vitrænar tillögur í kommentin :) ... og þið þarna laumublogglesarar endilega látið heyra í ykkur!