mánudagur, febrúar 21, 2005

Ging gang gúllí

Helgin var aldeilis fín og afslöppuð. Var heima hjá systur minni að gæta krakkanna hennar, sem fólst aðallega í því að gefa þeim að borða og ganga frá eftir þau :) ... enda orðnir unglingar sem hafa nóg að dunda.

Og svo í gær kíkti ég á frekar þunglynt en mjög svo vel leikið leikrit í Þjóðleikhúsinu. Leikritið hét sem sagt Mýrarvatn. En sem sagt það var lán í óláni að pabbi minn hafi verið lasinn því að hann og mútta eiga fasta miða í leikhúsið og mömmu vantaði "deit". Og þar sem tilboðunum streymdi ekki inn af huggulegum deitum, á sjálfan konudaginn, sló ég til og tók tilboði mömmu pæju. Rosa huggó puggó.

Ooooog nú styttist í Noregsferð! ....... 3 dagar til stefnu.