mánudagur, febrúar 14, 2005

Helgin

Rosalega róleg helgi maður.
Gerði EKKERT hvorki föstudags- né laugardagskvöld, sem hefur ekki gerst lengi.
Var reyndar mennó í gær.
Fór fyrst með mömmu og tvíburasystur hennar á Listasafn Reykjavíkur að skoða sýninguna hennar Rutar Rebekku og svo á kaffihúsið Te og kaffi ég eftir.
Svo fór ég í bíó og sá myndina Sideways ... sem var frekar skrýtin mynd, en lúmskt gaman að henni.

Var svo að ákveða í gær að drífa mig til Rósu til Boston í vor, best að fara að panta miða :)