mánudagur, mars 28, 2005

.. og letin heldur áfram!

Hvernig er hægt að sofa 13 tíma á sólarhring? ... og hvernig kem ég mér út úr þessu?
Ég er farin að taka þessu of hátíðlega að taka páskana rólega... this is too much... ég enda í þunglyndi ef ég held þessu áfram hehe.

Spurning um að fara eitthvað út og hressa sig við NÚNA.

Annars fór ég hinn árlega páskamat til múttu og pápa í gær. Öll fjölskyldan sat við eitt borð - 13 manns takk fyrir, við sáum það að það við erum komin í tóm vandræði ef einn fjölskyldumeðlimur bætist við.... jahh alla vega verður erfitt að sita öll við sama borð.

Ég fékk páskaegg! Alveg tilgangslaust þar sem ég borða ekki svoleiðis .. en það er skylda að fá málshátt í minni fjölskyldu, allt í lagi þó maður opni bara, taki málsháttinn úr og rétti svo hinum eggið til áts. Og málsháttur ársins var: "Hver finnst sín reiði réttsýn" .. eða eitthvað í þá áttina. Stefanía litla fékk málsháttinn: "Kemst þó hægt fari" ... yyyyyndislegt!

Hvaða málshætti fenguð þið?