sunnudagur, mars 20, 2005

Meira djamm!

Þetta er nú meira djammið á manni... Á föstudaginn "þurfti" ég að fara á vinnudjamm með fólki sem ég hef ekki djammað áður (nema Slaugu) og þetta var nú bara svaka flott.

Byrjað kl. 18 á föstudaginn og kom heim kl. ca. 3
Fór í vinnu kl. 9-11:30 .. fjúff ... soldið erfitt.
Stákarnir í vinnunni voru þó ósköp skilningsríkir greyin (allt annað fólk en ég djammaði með kvöldið áður).

Annars er helgin bara búin að vera róleg.
Afrekaði þó að gera skattskýrsluna í dag á klst, djö.. er ég öflug!
Er búin að taka til líka svolítið og fara með bílinn í þvott enda ekki vanþörf á.
Fór í afmæli til Önnu Laufeyjar sætu systurdóttur minnar í dag.
Svo var annars bara unnið aðeins meira svo ég sé nú undirbúin fyrir þessa 7 fundi sem ég fer á á morgun.

Lifið heil, gúddbæ!