Páskar
Ég er aldeilis komin í páskafrí. Er búin að hafa það svo náðugt að ég er orðin þreytt á að hvíla mig.... held því samt áfram.
Fór í sund í bæði gær og í fyrradag, nett matarboð til GAM systur í gær (voða góður matur) og annars bara örfáir aðrir dagskrárliðir.
Það sem er fréttnæmt er að Elsa Þóra og Trausti Þór Noregsbúar voru að eignast dökkhærða DÓTTUR!! Voða mikið krútt ... og ég sem hélt þetta mundi verða ljóshærður strákur!!!! Svona finnur maður þetta svakalega mikið á sér. EN ég óska þeim INNILEGA til hamingju.... yyyyndislegt.
Á morgun er svo Páskadagur og ætlunin er að fá sér soðið egg og speltrúnnstykki í morgunmat (eins og flestir aðrir landsbúar.... NOT) og njóta þess fram í fingurgóma.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home