laugardagur, maí 28, 2005

Jeddúddamíastur!!!!

ÞETTA VAR ÆÐI.... nú held ég sé orðin húkkt á U2 tónleikum og mig langar bara á fleiri.
Strákarnir voru æði, skemmtu sér vel, spiluðu meira að segja lög sem ekki voru undirbúin, voru hlæjandi og flissandi, stríðandi hverjum öðrum. Þeir spiluðu meira að segja lengur en þeir eru vanir og fólkið í salnum var bara ALLS ekki á því að fara heim. Enginn smá fjöldi þarna.

Ég var staðsett alveg upp við ellipsuna sem kemur út frá sviðinu og sá því goðin mjög nálægt, ekki leiðinlegt það! Við Rósa enduðum með að tárast smá yfir þessu ... þó ekki á sama tíma! Lagið One gerði útslagið hjá undirritaðri.

Sviðið var rosalega flott og ljósasjóvið algjört æði. Pabbi hefði fílað það hugsa ég, held reyndar að hann hefði misst sig yfir öllum græjunum þarna (kannski smá sterkt til orða tekið).

Ég tók slatta af myndum á símann minn, sjá nánar á mblogginu mínu.

Ein ráðlegging: FARIÐ á tónleikana í Osló (27. júlí) eða Köben (29. júlí) .... VEL þess virði.

Hér eru myndir sem áhorfandi tók á tónleikunum.