miðvikudagur, maí 25, 2005

Sumarfrí í Boston

Já dömur mínar og herrar... ég er loksins komin í frí og skellti mér til Boston að því tilefni.
Hér er langt frá því að vera vorstemning, eiginlega meiri hauststemning, því að hér er verið að slá kuldamet í maí mánuði síðan sautjánhundruðogsúrkál og ofan í það er smá rok og rigning líka. En ég er nú sannur Íslendingur og þekki mig vel í þessu veðri, læt mig bara hafa það og brosi breitt. Enda er heldur ekki annað hægt þegar maður er að fara á U2 tónleika.

Tónleikarnir eru á morgun og ég get ekki annað sagt en að ég sé bara alveg ótrúlega brjálæðislega rosalega spennt. Það voru aðrir U2 tónleikar hér í Boston í gær og við Rósa vinkona kíktum þar við til að skoða aðstæður og tékka hversu snemma við þurfum að vera mættar í röð.
Það stefnir í það að vera mætt kannski svona 2 tímum fyrr, ætti alveg að duga!

Annars er ég búin að afreka það að kaupa mér gönguskó hér í borg - svaka ánægð með kaupin og núna ætti ég að vera vel græjuð fyrir gönguferðina um Skælinga í sumar með Selmu. Ætlunin er að vígja skóna með því að skella sér á Esjuna þegar ég kem heim, er einhver memm í það?

Buller? Buller? Ferris?