föstudagur, nóvember 25, 2005

Komin heim

Ég er komin heim og var alveg dauðþreytt í gær í vinnunni.
Fór heim eftir vinnu, lagði mig og fór svo að aðstoða Loga við að pakka og þrífa í íbúðinni hans.
Íbúðin verður afhent á sunnudaginn og þetta lítur bara alveg ágætlega út.

Ég náði að kaupa nokkrar jólagjafir úti þannig að ég er búin með ca. helming. En það má segja að erfiðari helmingurinn sé eftir þ.e. gjafir fyrir foreldra mína, systur mínar og fire! ... en ég hlýt nú að græja það á góðum degi :D

Eruð þið búin að kaupa gjafirnar? Komin í jólaskapið?
Ég er aaaaaalveg að komast í jólaskap. Aðventan á næsta leyti og maður getur farið að skreyta smá hjá sér og svona.