Mikið og margvíslegt
Hef ekki nennt að blogga, er bara of mikið fyrir framan tölvuskjá og nenni því ekki í frístundum.
Það er ekki það að það sé ekki neitt að frétta, því er nú fjarri.
Síðustu daga hefur mér og krúttinu tekist að kaupa hús, selja íbúðina hans, fara til Sikileyjar, tölvunördast á kvöldin, vera hömlulaus í Su Doku og ýmislegt fleira.
Þetta er bara allt skemmtilegt og ég er alveg í skýjunum.
Svo tókst mér að fá stöðuhækkun í vinnunni um daginn, það var heldur ekki leiðinlegt. Ég er samt loksins að ná að trappa mig niður eftir vinnubrjálæðið sem átti sér stað frá febrúar til september. Hver veit nema ég bloggi meira??? ... kemur í ljós.
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home