miðvikudagur, desember 28, 2005

Gleðilega hátíð

Ég er búin að hafa það alveg YNDISLEGT um jólin.
Fékk alveg fullt af flottum gjöfum, takk fyrir mig ... og er að fíla það í tætlur að hann Logi minn sé alveg að fatta hvað ég er mikið jólabarn. Var svoleiðis ofdekruð að hálfa væri nóg, var plötuð tvisvar af Rassálfinum ;) hehe.

Svo kom Rósa vinkona og John (kærastinn hennar) í mat til okkar í gærkvöldi, ferlega næs að sjá þau. Kjöftuðum og fórum í bíltúr og svona, voða huggó.

Stefnan er svo tekin á að sjá leikritið "Ég er mín eigin kona" á fimmtudaginn með nánast öllum kópóvinkonunum - tvær af þeim komnar í jólafrí frá Noregi. Jeij!

Gott að fá þessar vinkonur sínar frá úglöndum um jólin :D