fimmtudagur, desember 15, 2005

Jólaskapið

Já jólaskapið lætur segja til sín þessa dagana. Og við sambýlingarnir (hehe fyndið orð) tókum okkur til og keyptum þetta fína jólaskraut í gærkvöldi í Blómavali. Fyrir valinu urðu þrjár ljósaskreytingar með mynd af jólatré, snjókarli og jólasleða og þetta er komið upp í þrjá glugga. Við erum sem sagt orðin samkeppnishæf í hverfinu og mjög jóló um að lítast þegar maður horfir á húsið á Langholtsveginum.

Það sem svo fylgir þessari sögu er að við keyptum forláta steikarfat í leiðinni í blómavali. Okkur leist svo vel á það þar sem við erum með á dagskránni að fá fólk í hrygg á sunnudagskvöldið. Fatið var ferkantað og stórt og gott og við svona hrikalega ánægð með kaupin.

Þegar heim var komið sáum við eftir því að hafa ekki keypt minni gerðina af svona steikarfati þar sem að þetta var bara allt of stórt í litla ofninn okkar. Við þutum aftur út í búð og skiptum fatinu í minna og töldum okkur vera örugg en smá sorry þar sem ekki eins stór hryggur fittar í það. En allt kom fyrir ekki.... það var líka of stórt!

Endar sennilega á að einhver fær þetta í jólagjöf frá okkur!!