Áramótaheit?
Í ár er planið að strengja eitthvað gott og helst óvenjulegt áramótaheit.
Ekki er ætlunin að það heit innihaldi orð eins og megrun, kíló, útlit eða hreyfing, þar sem ég hugsa bara um það einn dag í einu og það hentar mér vel.
Frekar væri gott að strengja heit eins og að:
- hlusta betur á fólk
- vera góð og hjálpleg manneskja
- gefa X kr í góðgerðarstarfsemi
- ferðast með krúttinu mínu
- læra að lesa ársreikninga
- læra svolítið í spænsku
- læra meira jóga
Ætla að hugsa þetta aðeins betur.
Hvaða áramótaheit ætlið þið að strengja í ár? ... ef einhver.

<< Home