þriðjudagur, janúar 03, 2006

Heilsuspekúleringar

Nýtt ár, ný byrjun ... er það ekki týpískt að hugsa svona?

Ég er í því að skoða svolítið heilsuna mína og ýmsar hugmyndir eru í gangi. Til dæmis langar mig að skella mér í nudd. Líst rosalega vel á að kíkja í nudd á Nordica Spa, langar voðalega að prófa Ayurveda nudd sem á að vera eitthvað indverskt og fínt.

Svo er ég búin að panta tíma hjá næringarþerapista, takk fyrir! Hugmyndin er að fá smá ráð frá henni varðandi skammtastærðir og val á matartegundum. Mér skilst hún Þorbjörg sé alveg rosa klár og hlakka til að kíkja til hennar.

Já svo heyrði ég að það væri til þessi fína verkefnabók frá gaurnum sem fann upp ropeyoga - er að spá í að kíkja aðeins í hana, ókeypis fyrir alla Íslendinga sem langar að skoða sitt innra sjálf! whúhúúú - nú er ég háfleyg ... sjáum til hvort maður skoði þetta.

... og svo held ég mig bara við það sem ég hef verið að gera síðustu ár!

Lífið er yndislegt!