Springt i luft op!
Gleðilegt ár alle sammen og takk fyrir það gamla.
Ég átti alveg yndislegt gamlárskvöld með góðu fólki, góðum mat, góðu rakettusjóvi og fínum knúsum og kossum.
1. jan var svo bara tekinn rólega, en nú byrjar alvara lífsins. Árið 2006 er víst komið til að vera ... ja alla vega í 12 mánuði hehe.
Ég sé ekki annað en þetta verði gott ár framundan. Ég set íbúðina mína á sölu, flyt í Seljahverfið með krúttinu, geri upp baðherbergi, vonandi ferðast ég eitthvað og það eru væntanlega einhverjir hlutir að gerast í vinnunni.
En ég verð nú bara að segja ykkur að í gær gerðist örugglega óvæntasta uppákoma ársins 2006 ... jedúddamíastur! .... og árið rétt að byrja! Gifting hjá mestu dúllum í heimi !!!!! ...og hef ekki hugmynd um hvort ég má segja nöfn þannig að ég bara held kjafti núna.
Góð byrjun á árinu ... I must say!
gaggalill
um allt og ekkert

<< Home